Sony
Útlit
![](https://cdn.statically.io/img/upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/7/7d/Sony_headquaters_2.jpg/220px-Sony_headquaters_2.jpg)
Sony (japanska (katakana): ソニー) er stórt japanskt fyrirtæki sem framleiðir aðallega raftæki. Fyrirtækið var stofnað 7. maí 1946 af Masaru Ibuka og Akio Morita en nafnið sem það ber í dag fékk það 1958. Meðal þekktustu vara fyrirtækisins í dag eru Walkman tónlistarspilararnir og PlayStation leikjatölvurnar. Í dag á Sony verksmiðjur og dótturfyrirtæki um allan heim. Meðal þekktustu fyrirtækja sem Sony á að miklu eða öllu leyti eru:
- Sony Pictures Entertainment, sem á meðal annars:
- Sony BMG Music Entertainment, sem á meðal annars:
- Columbia Records (elsta tónistarútgáfa heims)
- Epic Records
- Sony Ericsson Mobile Communications AB